Bloggiđ dottiđ uppfyrir?
Ég ætti nú ekki að segja mikið enda ekki mjög virkur bloggari en mér finnst mjög gaman að lesa blogg annarra og fer alltaf samviskusamlega á hverjum degi á bloggsíðurnar hérna til hliðar og nokkrar í viðbót og það er ein síða virk og það er hjá henni Írisi :) Klapp fyrir Írisi jeijjj :D
Það voru nokkrir mjög virkir sem eins og ég eignuðust börn og bara búmm ekki meira blogg haha soldið fyndið en náttúrulega blogg er ekkert merkilegt svosem og kannski skemmtilegra að uppfæra barnalandssíðurnar eins og ég sjálf veit en mér finnst þetta svolítið fyndin þróun....er bloggið að deyja út?
Ekkert svosem annars að frétta af mér, er búin að vera heima alla vikuna með Kristó minn lasinn og ég er að klepra gjörsamlega klepra!!! Dauðlangar að fara bara út og stússast í nokkra klukkutíma ALEIN og helst bara án síma!!!!! Kíkja í kringluna eða smáralind og versla og eitthvað ohhhhhh hvað mig langar.
Geri þetta eitthvert kvöldið í vikunni aðeins að reyna að komast í jólaskap og losa pirring sem svona innvera veldur hehe alveg ótrúlegt hvað það tekur á að vera með lasið barn úfffffff
jæja knús




